Stjórn Eyþings, sambands sveitarfélaga í Eyjafirði, samþykkti bókun vegna brotthvarfs fréttamanns á starfsstöð RÚV á Akureyri um síðustu mánaðamót. Þá lét Óskar Þór Halldórsson af störfum en hann hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar KA. Vikudagur greinir frá þessu.Í bókun Eyþings segir m.a.: „Að mati stjórnarinnar er hér um að ræða einn besta fréttamann sem svæðisstöðin hefur haft. Óskar Þór hefur með einstaklega vönduðum fréttaflutningi stuðlað að jákvæðri og málefnalegri umfjöllun um málefni Norðurlands. Brotthvarf hans úr starfi fréttamanns veldur því vonbrigðum og er það von stjórnar Eyþings að RÚV eigi eftir að njóta starfskrafta Óskars á ný og skorar á stjórnendur RÚV og Óskar að vinna að því."Óskar Þór á að baki langan feril í fjölmiðlum. Áður en hann kom til starfa á RÚV hafði hann m.a. verið fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar á Akureyri og þar áður ritstjóri og blaðamaður á dagblaðinu Degi.