„Þær áhyggjur sem fram komu í fjölmiðlum í gær um samkeppni frá Hörpunni eru fullkomlega óþarfar,“ segir í tilkynningu tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu sem send var á fjölmiðla í dag. Þar kemur fram að íslenskum ráðstefnu- og viðburðahöldurum stafi ekki ógn af Hörpunni heldur feli hún í sér tækifæri fyrir þá sem og aðra ferðaþjónustuaðila.
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpu, telur að áhyggjurnar einskorðist við örfáa aðila. Hún segir marga reynda aðila úr ráðstefnu- og veitingageiranum fagna tilkomu Hörpu og telja að hún muni fyrst og fremst stækka markaðinn. Að hennar sögn mun tilkoma hennar eiga eftir að koma Íslandi á kortið sem áfangastað fyrir ráðstefnur og stóra viðburði.
„Það er vel þekkt að með aukinni nýsköpun og fjölbreytni innan atvinnugreina þá eykst samkeppnishæfni þeirra. Það er ljóst að tilkoma Hörpunnar mun lyfta ráðstefnuhaldi hérlendis á nýtt stig. Þarna verður búnaður og þjónusta sem þekkist ekki í dag, pláss fyrir mun stærri ráðstefnur en áður og auk þess verður húsið markaðssett á markvissan hátt erlendis,“ segir m.a. í tilkynningunni.
Í tilkynningunni kemur einnig fram að opnun Perlunnar hafi olli samskonar áhyggjum á sínum tíma. „Margir veitingamenn töldu þá að hún myndi taka yfir allan markaðinn. Þær áhyggjur reyndust fullkomlega óþarfar eins og menn vita.“