Ingimar Karli sagt upp á Stöð 2

Merki Stöðvar 2.
Merki Stöðvar 2.

Ingimar Karli Helgasyni, fréttamanni á Stöð 2, var sagt upp störfum fyrirvaralaust er hann mætti til vinnu á mánudag.

Ekki var óskað eftir að hann ynni út uppsagnarfrestinn.

Ingimar Karl starfaði á Stöð 2 frá því snemma árs 2009. 

Í samtali við mbl.is staðfesti Ingimar Karl að honum hefði verið sagt upp störfum án nokkurs fyrirvara.  „Þetta kom mér á óvart,“ sagði Ingimar Karl. „Ætli ég verði ekki að melta þetta í einhvern tíma og einbeiti mér fyrst og fremst að börnunum mínum litlu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert