KS innkallar lambalæri

Kjötafurðastöð KS hefur ákveðið að innkalla í varúðarskyni fersk lambalæri með pökkunardagssetningu 29.09.2010 sem fóru í dreifingu í verslunum Bónus. Neytendur sem kunna að eiga vörunar til í frysti eru beðnir um að skila þeim í verslanir Bónus.

Fyrr í dag sendi fyrirtækið Ferskar kjötvörur út fréttatilkynningu um að það hefði ákveðið að innkalla nautakjöt í varúðarskyni vegna hugsanlegra díoxínmengunar.

Frétt frá Matvælastofnun

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert