Fasteignamarkaður glæðist

mbl.is/Arnaldur

Alls var þinglýst 81 kaupsamningi um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Er þetta talsvert meira en 12 vikna meðaltal en að jafnaði hefur 62 samningum verið þinglýst á viku að undanförnu.

Um var að ræða 50 samninga um eignir í fjölbýli, 25 samninga um sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2871 milljónir króna og meðalupphæð á samning 35,4 milljónir króna.

Einum kaupsamningi var þinglýst á Suðurneskun og var upphæð hans 11 milljónir. Sex kaupsamningum var þinglýst á Akureyri og var  meðalupphæð á samning 17,3 milljónir króna. Þá var þremur kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu og var meðalupphæð á samning 40,7 milljónir króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert