Umhverfisstofnun hefur látið stöðva framkvæmdir við sjóvarnargarð, sem að hluta til átti að byggja á friðlýstu svæði innan fólkvangsins í Óslandi í Hornafirði.
Stofnuninni barst ábending þess efnis að hafnar væru framkvæmdir innan fólkvangsins. Sjónarvottur varð vitni að því að vörubíl var ekið þvert í gegnum fólkvanginn og fimm bílförmum af grjóti var sturtað í fjöruna innan friðlýsta svæðisins ásamt. Einnig var ekið utan vega á mýrarsvæði þar sem árlega verpir mikill fjöldi fuglategunda.
Umhverfisstofnun hafði umsvifalaust samband við sveitarfélagið þar sem þær upplýsingar fengust að framkvæmdin tengdist sjóvarnargarði sem að hluta til átti að byggja innan hins friðlýsta svæðis. Umhverfisstofnun fór fram á það við sveitarfélagið að framkvæmdir yrðu stöðvaðar undir eins. Segir Umhverfisstofnun að sveitarfélaginu hafi láðst að leita tilskilinna leyfa í samræmi við gildandi lög áður en ráðist var í umræddar framkvæmdir.
Ósland er fólkvangur og er gangandi fólki er heimil för um fólkvanginn. Umferð ökutækja er þar aðeins heimil á vegi að útsýnisstað og bátalægi en hvergi þess utan. Mannvirkjagerð og jarðrask er óheimilt innan fólkvangsins.
Umhverfisstofnun segist líta málið alvarlegum augum enda um friðlýst svæði að ræða sem nýtur sérstakrar verndar. Stofnunin hefur óskað eftir því við sveitarfélagið að það leggi fram áætlun um lagfæringar á því raski sem orðið hefur á fólkvanginum og er málið til frekari meðferðar stofnunarinnar.