Landsvirkjun mun halda áfram undirbúningi vegna virkjana í Neðri-Þjórsá, að sögn Rögnu Söru Jónsdóttur, yfirmanns samskiptasviðs.
Hún sagði að niðurstöðu Rammaáætlunar, þar sem þessir virkjanakostir eru til umfjöllunar, yrði beðið.
„Landsvirkjun mun vinna þetta verkefni í nánu samráði við stjórnvöld,“ sagði Ragna.
Hæstiréttur staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands um að
ógilda bæri ákvörðun umhverfisráðherrans sem neitaði í janúar í fyrra að
staðfesta hluta aðalskipulags Flóahrepps varðandi Urriðafossvirkjun.