Umhverfisráðuneytið segir að umhverfisráðherra hefði í janúar í fyrra boðist til að staðfesta aðalskipulag Flóahrepps að Urriðafossvirkjun undanskilinni. Sveitarstjórn hefði hins vegar kosið að fara af stað með nýtt skipulagsferli.
Í hádegisfréttum Bylgjunnar sagði sveitarstjóri Flóahrepps að framkvæmdir í sveitarfélaginu hefðu legið í láginni vegna ákvörðunar umhverfisráðherra að staðfesta ekki aðalskipulag sveitarfélagsins á sínum tíma. Sagði sveitarstjórinn að ekki hefði verið hægt að deiliskipuleggja, ekki hægt að byggja við hús, útihús og í raun ekkert hægt að gera. Svona hafi ástandið verið í tvö ár.
„Í ákvörðun umhverfisráðherra frá janúar 2010 um aðalskipulag Flóahrepps kom fram að synja bæri um staðfestingu á þeim hluta aðalskipulagsins sem varðaði Urriðafossvirkjun og kom fram í ákvörðun ráðherra að ráðuneytið myndi staðfesta aðra hluta skipulagsins þegar sveitarstjórn hefði sent skipulagsuppdrætti í samræmi við ákvörðun ráðherra. Því gat sveitarfélagið óskað eftir staðfestingu ráðherra á skipulaginu án Urriðafossvirkjunar í kjölfar þeirrar ákvörðunar. Sveitarfélagið kaus hins vegar að fara af stað í nýtt skipulagsferli vegna Aðalskipulags Flóahrepps og er vinnu við það ekki lokið,“ segir í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu.
Í tilkynningunni kemur ekkert fram um að ráðuneytið ætli að staðfesta það skipulag sem ráðherra hafnaði í ársbyrjun 2010, en umhverfisráðherra sagði í samtali við mbl.is í gærkvöldi að hún ætlaði að gera það.