Jarðskjálftahrina milli jökla

Upptök skjálftahrinunnar sjást á þessari mynd frá Veðurstofunni.
Upptök skjálftahrinunnar sjást á þessari mynd frá Veðurstofunni. www.vedur.is

Um kl. 10:00 í morgun, 12. febrúar, hófst jarðskjálftahrina með upptök milli Langjökuls og Þórisjökuls. Stærsti skjálftinn varð kl. 10:05 og var hann 3,7 að stærð. Sá jarðskjálfti fannst í Húsafelli, 16 km SA af upptökusvæðinu.

Veðurstofan segir í tilkynningu að yfir 40 eftirskjálftar hafi mælst í þessari hrinu. Járðskjálfti af svipaðri stærð varð á þessu svæði þann 21. janúar 2009. Jarðskjálftar eru algengir á þessum slóðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert