Stuðningsmenn þess að Alþingi samþykki og forsetinn staðfesti frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave hafa nú opnað vefsíðuna Icesave Já Takk.
Þar er fólki boðið að skrifa undir svohljóðandi yfirlýsingu:
„Ég skora á Alþingi að samþykja frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icave-reikninga Landsbankans. Ég heiti jafnframt á forseta Íslands. herra Ólaf Ragnar Grímsson, að veita því lagafrumvarpi staðfestíngu, verði það samþykt á Alþingi. Mér finnst að Alþingi eitt eigi að úrskurða um þetta mál.“