Umferðarslys varð á Víkurvegi í Reykjavík rétt fyrir klukkan sex í kvöld.
Tildrög slyssins voru þau að jeppi ók inn í hlið fólksbíls. Ökumaður fólksbílsins sat fastur inni í bílnum og auk hans voru tveir úr jeppanum fluttir á slysadeild.
Meiðsli þeirra eru ekki talin vera alvarleg.
Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu er afar hált á Víkurvegi.