Evrópusamtökin, Evrópuvakt Samfylkingarinnar, Sjálfstæðir Evrópumenn, Sterkara Ísland og Ungir Evrópusinnar hafa ákveðið að sameina krafta sína undir sameiginlegu merki.
Verður samstarfið kynnt nánar á morgun. Segir í tilkynningu, að undirbúningur hafi staðið um langt skeið og fjöldi manns komið að því verki.