Akureyrarbær lýsir eftir nefi snjókarls, sem reistur var á Ráðhústorginu á föstudag. Nefið er um tveggja metra langt úr frauðplasti og standa neðan úr því steypustyrktarjárn sem notuð voru til að festa það við snjókarlinn.
Segir á vef bæjarins, að snjókarlinn sakni
sárt nefsins og séu allir þeir, sem kunna að hafa einhverjar upplýsingar
um hvar það er niðurkomið, beðnir að láta vita í síma 460 1000 eða með
tölvupósti í netfangið info@visitakureyri.is.