Undirskriftir á vefnum kjosum.is eru nú orðnar 20 þúsund talsins. Undirskriftasöfnun hófst þar á föstudag.
Textinn, sem fólk skrifar undir er eftirfarandi:
„Ég skora á Alþingi að hafna frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninga Landsbankans. Ég heiti jafnframt á forseta Íslands, herra Ólaf Ragnar Grímsson, að synja því lagafrumvarpi staðfestingar, verði það samþykkt á Alþingi. Ég vil að þjóðin fái að úrskurða um þetta mál."