22.322 hraðabrot

Hraðamyndavél.
Hraðamyndavél.

Alls voru skráð 22.322 hraðakstursbrot með stafrænum hraðamyndavélum á árinu 2010 og er það svipaður fjöldi og árið á undan, að því er kemur fram á vef ríkislögreglustjóra.

Flest brotin áttu sér stað á Suðurlandvegi en þar eru tvær hraðamyndavélar milli Hveragerðis og Selfoss. Sá sem hraðast ók var á199 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Þetta brot var myndað á Suðurlandsvegi og var ökumaðurinn tvítugur karlmaður.

Stafrænar hraðamyndavélar eru meðal annars í Hvalfjarðar- og Fáskrúðsfjarðargöngum en ökumenn keyra hlutfallslega hraðar um Fáskrúðsfjarðargöng en Hvalfjarðargöng.

Á árinu 2010 voru 10 stafrænar hraðamyndavélar í notkun. Fyrstu vélarnar voru teknar í notkun í júlí 2007 og hafa því verið virkar í 3½ ár. Fyrirhugað er að fjölga þessum myndavélum. Hraðamyndavélarnar eru í umdæmi lögreglustjóranna í Borgarnesi, á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Eskifirði og á Selfossi.

Skýrsla um hraðamyndavélar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert