Fundur bræðslumanna hafinn

Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri Afls á Austurlandi og Magnús Pétursson …
Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri Afls á Austurlandi og Magnús Pétursson ríkissáttasemjari við samningaborðið. mbl.is/Ómar

Samninganefndir starfsmanna í loðnubræðslum og Samtaka atvinnulífsins settust niður við samningaborðið kl. rúmlega 10 í morgun. Verkfall hefst kl. 19:30 í kvöld hafi samningar ekki tekist.

 Samningafundur stóð fram á kvöld í gær, en hann leiddi ekki til samkomulags. Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri Afls á Austurlandi, sagði eftir fundinn í gær að enn bæri talsvert á milli samningsaðila og brugðið gæti til beggja vona um árangur í viðræðunum.

Skelli á verkfall stöðvast öll starfsemi í fiskimjölsverksmiðjum á Vopnafirði, Seyðisfirði, Norðfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Hornafirði, Akranesi og í Vestmannaeyjum.

Aðeins verður unnin loðna í tveimur verksmiðjum, þ.e. Þórshöfn og Helguvík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert