Vigdís Hauksdóttir alþingismaður Framsóknarflokksins, hefur sagt sig úr umhverfisnefnd Alþingis. Hún segir í bréfi til forseta Alþingis, að hún geri það vegna samstarfsörðugleika við Mörð Árnason, formann nefndarinnar.
„Af gefnu tilefni tilkynni ég hér með að ég óska eftir lausn frá störfum í umhverfisnefnd. Ástæða þess er samstarfsörðugleikar við formann nefndarinnar Mörð Árnason.
Augljóst
er að formaður nefndarinnar beitir mjög mismunandi vinnubrögðum eftir
því hvort stjórnarþingmenn eða stjórnarandstöðuþingmenn eiga í hlut. Er
hann vart hæfur til að gegna formennsku í nefnd sökum hlutdrægni. Tók
steininn úr á fundi nú í morgun og gekk ég af fundi ásamt öðrum
þingmanni sem eins var ástatt um.
Er
nefndarstjórn þingmannsins afar einkennileg – sérstaklega í ljósi
vinnubragða sem hann sjálfur beitir fund eftir fund sem óbreyttur
þingmaður í allsherjarnefnd – að eftir er tekið.
Samkvæmt þingsköpum hafa allir þingmenn málfrelsi á nefndarfundum og gæta skal jafnræðis milli þeirra. Þessi hlutleysissjónarmið eru ekki í heiðri höfð í umhverfisnefnd.
Því á ég einn kost í stöðunni eins og að framan greinir – að biðjast lausnar sem fulltrúi Framsóknarflokksins í umhverfisnefnd.
Mun ég taka málið upp á þingflokksfundi í dag og fara þess á leit að flokkurinn tilnefndi annan þingmann í minn stað,“ segir Vigdís á heimasíðu sinni.