Fjármálaráðuneytið vill árétta að við gerð könnunar á einelti meðal ríkisstarfsmanna leitaði ráðuneytið til þriðja aðila við úrvinnslu
gagna og óskaði ennfremur eftir því að gerður yrði vinnslusamningur á
milli ráðuneytisins og þess fyrirtækis. Það lofar að bæta úr ágöllum.
Persónuvernd hefur gert athugasemd við framkvæmd fjármálaráðuneytisins
könnunar á tíðni eineltis í starfi hjá ríkisstarfsmönnum. Persónuvernd
þótti skorta tilteknar upplýsingar af hálfu fjármálaráðuneytis til
þátttakenda.
Af þessu tilefni vill Fjármálaráðuneytið árétta að við framkvæmd
umræddar könnunar leitaði ráðuneytið til þriðja aðila við úrvinnslu
gagna og óskaði ennfremur eftir því að gerður yrði vinnslusamningur á
milli ráðuneytisins og þess fyrirtækis. Vinnslusamningurinn kveður m. a.
á um meðferð persónuupplýsinga, til að tryggja öruggari meðferð
persónugagna.
„Fjármálaráðuneytið kemur að framkvæmd fjölda kannanna og leitast ávallt
eftir að viðhafa fagleg vinnubrögð við það starf líkt og í öðru starfi
ráðuneytisins.
Bætt verður úr þessum ágalla í kynningu til þátttakenda í sambærilegum
könnunum eftirleiðis og leiðbeiningum því breytt í samræmi við
úrskurðinn,“ segir í fréttatilkynningu.