Ríkisendurskoðun segir í nýrri skýrslu, að vel hafi verið staðið að sameiningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og dómsmála- og mannréttindaráðuneytis í nýtt innanríkisráðuneyti, sem tók til starfa í byrjun ársins.
Ríkisendurskoðun segir í nýrri skýrslu, að um flest hafi vel verið staðið að undirbúningi og framkvæmd sameiningarinnar. Ákvörðun um hana hafi verið tekin að vel athuguðu máli, markmið hennar verið skýr sem og verkstjórn og verkaskipting í sameiningarferlinu.
Engu að síður telur Ríkisendurskoðun að áætla þurfi kostnað sameiningarinnar betur en gert hefur verið. Einnig sé brýnt að ljúka langtímastefnumótun og gerð verklagsreglna og rekstraráætlunar fyrir hið nýja ráðuneyti. Þá bendir stofnunin á mikilvægi þess að áfram verði stutt við starfsfólk ráðuneytisins í því breytingaferli sem framundan er.
Skýrslan um sameiningu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og dómsmála- og mannréttindaráðuneytis er sú fjórða sem Ríkisendurskoðun gefur út um niðurstöður athugana á sameiningu ríkisstofnana. Áður eru komnar út skýrslur um sameiningu skattumdæma landsins, Þjóðskrár og Fasteignaskrár og Keflavíkurflugvallar ohf. og Flugstoða ohf.