Rúmlega 40.000 Íslendingar hafa nú skrifað undir áskorun á vefsíðunni kjósum.is, þar sem skorað er á Alþingi að hafna frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninga Landsbankans.
Þar er jafnframt heitið á forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, að synja því lagafrumvarpi staðfestingar, verði það samþykkt á Alþingi og að þjóðin fái að úrskurða um þetta mál.