Afhentu forsetanum undirskriftir

Ólafur Ragnar Grímsson tekur við undirskriftunum á Bessastöðum í dag.
Ólafur Ragnar Grímsson tekur við undirskriftunum á Bessastöðum í dag. mbl.is/Ómar

Forsvarsmenn vefsíðunnar kjósum.is afhentu Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í morgun undirskriftir um 37 þúsund Íslendinga þar sem farið er fram á að forsetinn synji nýjum Icesave-lögum staðfestingar. 

Eftir að hafa tekið við undirskriftunum settust forsvarsmenn undirskriftasöfnunarinnar á fund með forsetanum á Bessastöðum þar sem þeir ætluðu að gera grein fyrir undirskriftasöfnuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert