Eigendur Bókabúðar Máls og menningar við Laugaveg tilkynntu starfsfólki á fundi í kvöld að farið hafi verið fram á gjaldþrotaskipti hjá félaginu sem rekur bókabúðina og að verslunin verði ekki opnuð í fyrramálið.
Þetta kemur fram á eyjunni.is og jafnframt, að tilkynningin hafi komið starfsfólki í opna skjöldu þar sem reksturinn virtist hafa gengið nokkuð vel að undanförnu. Þó hafi það valdið óþægindum síðustu daga og vikur að birgjar hafi komið í verslunina og sótt þangað vörur sínar.