Lögregla var í vikunni kölluð að heimili á höfuðborgarsvæðinu vegna ágreinings um tölvunotkun. Þar áttu mæðgin í útistöðum en þrætueplið var tölvunotkun sonarins.
Móðirin vildi meina að tölvunotkunin bitnaði á náminu en pilturinn sá hlutina ekki sömu augum. Reynt var miðla málum og síðan farið af vettvangi.
Lögreglan segir, að ekki sé vitað hvort viðvarandi lausn fannst á tölvunotkun unglingsins á þessu heimili en vandamálið sé ekki með öllu óþekkt. Um það vitni önnur útköll lögreglu af sama tagi.