Loðnukvótinn aukinn

Loðnuskipið Lundey. Myndin er fengin af vef HB Granda.
Loðnuskipið Lundey. Myndin er fengin af vef HB Granda.

Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, hefur gefið út reglugerðir sem fela það í sér að loðnukvótinn verður aukinn um 65 þúsund tonn. Er þetta í samræmi við nýja ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

Aukningin fer nær öll til íslenskra fiskiskipa eða 64,4 þúsund tonn.

Heildarheimildir til loðnuveiða á fiskveiðiárinu eru nú 390 þúsund tonn og þar af fara um 317 þúsund tonn til íslenskra fiskiskipa. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert