Goðafoss, gámaskip Eimskips, sem strandaði á áttunda tímanum í gærkvöldi í innsiglingunni í Fredrikstad í Noregi, lekur nú olíu beggja vegna miðskips.
Olían hefur lekið í 2,5 sjómílur vest-suð-vestur af skipinu og eini þjóðgarður Noregs í hafi er í hættu, samkvæmt frétt í norska Aftenposten í dag.
Nú er verið að reyna að girða skipið af, þannig að olían haldist á afgirtu svæði. Samkvæmt upplýsingum á vef norsku strandgæslunnar eru aðstæður á strandstað með ágætum.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni eru slíkar olíuvarnargirðingar
blásnar upp og þær fljóta síðan á sjónum. Í girðingunni er efni sem
dregur olíuna að sér.
Skipið strandaði á Kvernskjær, sem er á milli Asmaløy og Kirkøy rétt fyrir utan Hvaler. Olíufarmurinn er talinn vera 800 tonn af þungolíu, sem er óhreinsuð jarðolía. Einnig 493 gámar um borð.
Lekinn er í tveimur tönkum miðskips, sem hvor um sig tekur 250 tonn.
Norska siglingamálastofnunin er á staðnum til að meta aðstæður.
Strandstaðurinn er ekki langt frá landamærum Noregs og Svíþjóðar. Því er sænska strandgæslan í viðbragðsstöðu, leki olían inn á yfirráðasvæði þeirra.
Skipið, sem er 165 metra langt og og 14664 tonna gámaflutningaskip, hafði nýlega sagt skilið við hafnsögubát þegar það strandaði. Engan hefur sakað um borð.