Samherji greiddi samtals 1.200 milljónum meira í laun og launatengd gjöld í fyrra en árið á undan. Í frétt frá fyrirtækinu segir að 37% af hækkun launa og launatengdra gjalda hafi runnið til starfsmanna en 63% til ríkisins, lífeyrissjóða og stéttarfélaga.
„Á árinu 2010 greiddi Samherji hf. 5.300 milljónir króna í laun og launatengd gjöld. Hækkun á milli ára nam samtals 1.200 milljónum króna. Af þessari hækkun fengu starfsmenn Samherja hf. 450 milljónir í sinn hlut en ríkið, lífeyrissjóðir og stéttarfélög 750 milljónir,“ segir í fréttatilkynningu frá Samherja.