Togarinn Merike sökk í gær um fjörutíu til fimmtíu mílum suðaustur af Hjörleifshöfða. Dráttarbáturinn Eurosund var að flytja togarann í brotajárn til Danmerkur en hann hafði legið í Hafnarfjarðarhöfn í 4 ár. Engin olía var í togaranum svo ekki er óttast um umhverfisafleiðingar.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var slæmt veður á svæðinu í gær, vindur um 20 metrar á sekúndu og ölduhæð um 5-6 metrar.
Hafði dráttarbáturinn samband við Landhelgisgæsluna en hann hafði þá hægt á sér þar sem 40 gráðu stjórnborðshalli var kominn á togarann. Sökk skipið á um tuttugu mínútum.
Togarinn legið í Hafnarfjarðarhöfn um nokkurt skeið en hann er um fjörutíu ára gamall. Hann var skráður í Eistlandi en rekinn af íslenskum aðilum samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.
Merike var síðast gerður út á rækjuveiðar m.a. á
Flæmska hattinum. Eigendur skipsins, Reyktal ehf., seldi það til niðurrifs.