Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, telur að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, eigi að víkja strax á morgun vegna synjunar forseta Íslands á nýju Icesave-lögunum. Hann segir að ríkisstjórnin sé orðin bensínlaus.