57,7% myndu samþykkja Icesave

Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnti ákvörðun sína um að synja lögunum …
Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnti ákvörðun sína um að synja lögunum staðfestingar á blaðamannafundi á Bessastöðum. mbl.is/Golli

Tæp 58% myndu samþykkja Ices­a­ve-samn­ing­inn í þjóðar­at­kvæðagreiðslu sam­kvæmt nýrri könn­un MMR. Þá sögðust 60,7% styðja ákvörðun for­seta Íslands um að vísa mál­inu til þjóðar­at­kvæðis.

Af þeim sem tóku af­stöðu voru 60,7% sem sögðust styðja ákvörðun for­seta Íslands um að staðfesta ekki nýj­ustu Ices­a­ve lög­in og vísa þeim í þjóðar­at­kvæðagreiðslu. Þá sögðust 57,7% þeirra, sem tóku af­stöðu,  myndu kjósa með lög­un­um kæmu þau til at­kvæðagreiðslu í dag, það er að samþykkja lög­in.

Áber­andi andstaða var við ákvörðun for­set­ans um að staðfesta ekki nýju Ices­a­ve lög­in meðal stuðnings­manna rík­is­stjórn­ar­inn­ar, en 74,3% þeirra kváðust ekki styðja ákvörðun for­set­ans. Á hinn bóg­inn sögðust 76,5% þeirra, sem sögðust rík­is­stjórn­inni and­víg­ir, styðja ákvörðun for­set­ans.

Ef horft er til af­stöðu til kom­andi Ices­a­ve kosn­inga eft­ir stuðningi við stjórn­mála­flokka má sjá að helm­ing­ur sjálf­stæðismanna (49,9%) hyggst kjósa með Ices­a­ve lög­un­um sam­an­borið við 37,4% fram­sókn­ar­manna, 83,1% vinstri-grænna og 96,7% sam­fylk­ing­ar­fólks.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert