Ákvörðun kjararáðs skiljanleg og málefnaleg

Guðlaug Kristjánsdóttir er formaður BHM.
Guðlaug Kristjánsdóttir er formaður BHM.

Bandalag háskólamanna segir að ákvörðun kjararáðs um að hækka laun dómara sé bæði skiljanleg og málefnaleg, að mati BHM. Í ályktun frá samtökunum segir að erfiðlega gangi að ráða háskólamenntaða sérfæðinga til starfa hjá hinu opinbera, bæði vegna mikils álags og lakra launakjara. 

Þá segir að stjórn BHM árétti að starfsálag sé almennt  mjög mikið hjá hinu opinbera og að launakjör félagsmanna BHM hafi rýrnað mjög frá hruni samfara auknum álögum á millitekjuhópa. 

„Stjórn BHM skorar á opinbera vinnuveitendur að setja kraft í kjaraviðræður.  Félagsmenn BHM hafa ekki fengið neinar kjarabætur frá því árið 2008 á meðan hækkanir hafa verið annars staðar, bæði á opinberum og almennum vinnumarkaði.

Opinberri þjónustu verður ekki haldið úti án háskólamenntaðs starfsfólks.  Aðgerð kjararáðs er skýrt merki um að launakjör háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna ná ekki að tryggja mönnun í mikilvæg störf,“ segir í ályktun frá BHM.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert