Fannst við Klambratún

Leitarhópur Landsbjargar við leit. Myndin tengist fréttinni aðeins óbeint.
Leitarhópur Landsbjargar við leit. Myndin tengist fréttinni aðeins óbeint. Ernir Eyjólfsson

Ábending frá borgara leiddi til þess að eldri maður sem leitað var að fannst við Klambratún í kvöld. Lögregla þakkar almenningi aðstoðina. Maðurinn sem er vistmaður á elliheimilinu Grund hafði ekki sést síðan kl. 18.30 í dag.

Lögregla höfuðborgarsvæðisins ásamt leitarhópum frá Landsbjörgu hófu leit í kvöld að manninum sem er 84 ára og alzheimersjúklingur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka