Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ferðast til Rómar í næstu viku til fundar við Benedikt páfa sextánda. Hyggst Ólafur færa páfa styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. Ekki hefur náðst í forsetaritara í kvöld.
Ólafur Ragnar mun eiga fund með páfa á þriðjudag og fær hann einkaáheyrn en slík þykir afar sjaldgæft, samkvæmt frétt Stöðvar 2. Styttan sem forsetinn hyggst gefa páfanum er eftir Ásmund Sveinsson.