Lét reiðina bitna á veggjum salernis

mbl.is/Júlíus

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði um helgina afskipti af stúlku á átjánda ári sem olli skemmdum á veitingastað í bænum. Hafði stúlkan látið reiði sína bitna á veggjum salernis.

Segir lögregla að stúlkan hafi slegið háhæluðum skóm í veggi salernisins með þeim afleiðingum að göt komu á þá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert