Landsbankinn ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem bankinn höfðaði gegn þrotabúi Motormax ehf. Segir bankinn að ef öll erlend lán af þessum toga yrðu talin ólögmæt, yrðu neikvæð áhrif á eignastöðu bankans að hámarki um 16 milljarðar króna.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag í ágreiningsmáli þrotabús Mótormax og Landsbankans. Málið er höfðað vegna erlends láns sem Mótormax hafði tekið hjá Landsbanka Íslands.
Af hálfu þrotabús Mótormax var því haldið fram að lánið væri ekki í erlendri mynt heldur í íslenskum krónum með gengistryggingu við erlenda mynt. Landsbankinn telur hins vegar að umræddur lánssamningur feli í sér skuldbindingu í erlendri mynt.
Héraðsdómur féllst á rök þrotabúsins en Landsbankinn telur óhjákvæmilegt að fá dóm Hæstaréttar Íslands um þetta ágreiningsefni og mun því kæra niðurstöðuna.
Málið sætir flýtimeðferð fyrir Hæstarétti og er endanlegrar niðurstöðu að vænta á næstu vikum.
Endanlegt uppgjör Landsbankans fyrir árið 2010 liggur ekki fyrir og því ekki hægt að meta nákvæmlega áhrif þess á bankann staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Ljóst er þó að ef öll erlend lán af þessum toga yrðu talin ólögmæt, yrðu neikvæð áhrif á eignastöðu bankans að hámarki um 16 milljarðar króna.
Í málinu er fjallað um algengasta form lána Landsbankans í erlendri mynt til fyrirtækja og þó þessi málalok hefðu umtalsverð áhrif, þá væri fjárhagsstaða bankans enn sterk, eiginfjárhlutfall hans yrði áfram hátt og vel umfram það 16% lágmark sem Fjármálaeftirlitið gerir kröfu um.