Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að verja 150 milljónum kr. til atvinnuátaksverkefna í samvinnu við Vinnumálastofnun. Auk þess verður 150 milljónum varið í sérstakt átaksverkefni í viðhaldi bygginga og endurgerð gamalla húsa.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir:
„Margt bendir til þess að atvinnu- og efnahagslíf sé að taka við sér eftir bankahrunið. Þó má búast við að afmarkaður hópur þeirra sem lengst hafa verið atvinnulausir, fari að falla út af bótum og óska eftir fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins. Reykjavíkurborg vill draga úr atvinnuleysi, einkum langtímaatvinnuleysi, með því m.a. að ráða atvinnulausa í átaksverkefni af margvíslegu tagi.“
Fram kemur að 150 milljónum verði varið til verkefna í þágu ungs fólks, til virkniverkefna fyrir fólk á fjárhagsaðstoð, til fólks með takmarkaða starfsgetu (fötlun) og til nýsköpunarsjóðsverkefna.
Þá verði 150 milljónum varið í sérstakt átaksverkefni sem felist í viðhaldi og endurgerð gamalla húsa. Verkefnið verði unnið í nánu samstarfi við Vinnumálastofnun og gert sé ráð fyrir að það verði boðið út til verktaka sem ráði til sín starfsmenn af atvinnuleysisskrá. Það fyrirkomulag sé talið heppilegra og auka líkurnar á því að fólk sé ráðið áfram hjá viðkomandi fyrirtæki.
Ráðinn verður sérstakur verkefnisstjóri til að vera tengiliður borgarinnar við Vinnumálastofnun og Atvinnuleysistryggingasjóð. Jafnframt mun hann aðstoða og taka við umsóknum frá fagsviðum um störf við átaksverkefni og taka ákvörðun með mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar um afgreiðslu erinda í samræmi við viðmið borgarráðs.
Aðgerðahópur borgarráðs um fjármál Reykjavíkurborgar gerir tillögur til borgarráðs um nýtingu fjármunanna en verkefnisstjóri og mannauðsstjóri sjá um útfærslu og nánari framkvæmd.