818 hreinræktaðir hundar af 82 hundategundum verða dæmdir á alþjóðlegri hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands sem fer fram í Reiðhöllinni í Víðidal um helgina. Megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu.
Sex dómarar frá sex löndum, Danmörku, Finnlandi, Írlandi, Lettlandi, Portúgal og Þýskalandi dæma í sex sýningarhringjum samtímis. Úrslit báða dagana hefjast upp úr kl.13:30 og þá kemur í ljós hvaða hundar bera af að mati dómara. Í anddyri reiðhallarinnar verða glæsilegir kynningarbásar um ólík hundakyn.
Þar gefst gestum og gangandi kostur á að kynnast hundum og ræða við hundeigendur auk þess sem á staðnum verða fjöldinn allur af sölu- og kynningarbásum þar sem ýmis tilboð verða í gangi.