„Þegar Hæstiréttur kvað upp úrskurð sinn sem ógilti kosningar til stjórnlagaþings, þá gagnrýndi ég réttinn harðlega. En ég tók fram að úrskurði hans bæri að hlíta til hins ítrasta,“ skrifar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á bloggi sínu í dag.
Með skrifunum ítrekar Ögmundur andstöðu sína við að þeir 25 sem náðu bestum árangri í kosningum til stjórnlagaþings verði skipaðir í stjórnlagaráð, líkt og samráðsnefnd alþingis um stjórnlagaþing leggur til.
Er sú skoðun þvert á það álit Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra og formanns VG, að fara beri að vilja nefndarinnar.
Ögmundur telur skipan stjórnlagaráðs hins vegar pólitíska „fjallabaksleið“ í málinu.
„Það þýðir á mannamáli að engar fjallabaksleiðir megi fara til að komast framhjá niðurstöðu Hæstaréttar. Að mínu mati er skipan stjórnmálaráðs með sömu einstaklingum og kosnir voru til stjórnlagaþings tilraun til einmitt þessa. Verði þetta niðurstaða Alþingis þá næst hún fram án míns stuðnings. Í dag lýsti ég yfir andstöðu við þetta ráðslag og að ég myndi ekki greiða þessari tillögu atkvæði mitt. Enda er það svo að orð skulu standa og grunvallarreglur skal virða!“