Paul Krugman, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði og einn þekktasti álitsgjafi heims á sínu sviði, skrifar í bloggi á vef New York Times að íslenska krónan hafi sýnt gildi sitt í kjölfar efnahagshrunsins.
„Jákvæða sveiflan á Íslandi hefur verið um tvöfalt stærri en á Írlandi - og við erum að tala um 10 aukapunkta í vergri þjóðarframleiðslu. Það er mikið af viðbótarinnspýtingu og að því marki sem það var vegna gengisfellingar, er það mikill plús að hafa eigin gjaldmiðil.“
Tilefni bloggsins eru tvær samanburðargreinar í Irish Times um kreppuna á Íslandi og Írlandi.
Krugman segir að gjalda beri varhug við greinunum tveimur og bendir meðal annars á að Íslendingar hafi að mestu leyti leyst úr kreppunni á sama tíma og Írar séu í henni miðri.
Blogg Krugman má nálgast hér.