Hefur gert upp skuldir

Ingibjörg Pálmadóttir.
Ingibjörg Pálmadóttir.
Ingibjörg Pálmadóttir segist hafa gert upp allar sínar skuldir við  Landsbankann með samkomulagi um eignir og peningagreiðslur. Íbúð í New York, sem skilanefnd Landsbankans hefur leyst til sín, sé hluti af því uppgjöri.

Í yfirlýsingu frá Ingibjörgu segir, að rétt sé að það komi fram, að Landsbanki Íslands hafi ekki verið með veð í nefndri íbúð, sem sé partur af uppgjörinu.

Fram kom í dag, að skilanefnd Landsbankans hafi leyst til sín íbúð í New York, sem var í eigu Ingibjargar og Jóns Ásgeirs Jóhannssonar, eiginmanns hennar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert