Vilja að ráðherra rökstyðji ákvörðun

Eyjabakkar eru hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.
Eyjabakkar eru hluti af Vatnajökulsþjóðgarði. mbl.is/Arnaldur

Kristján Þór Júlíusson og Birgir Ármannsson, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfisnefnd Alþingis, óska eftir opnum fundi nefndarinnar vegna staðfestingar ráðherra á verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð. 
 
Þeir óska eftir að umhverfisráðherra mæti til fundarins og upplýsi nefndina um hvernig samráði við helstu hagsmunaaðila hafi verið háttað varðandi takmarkanir á útivist, umferð og veiðum innan Vatnajökulsþjóðgarðsins.
 
Ennfremur er þess óskað að ráðherra færi á fundinum fram rökstuðning sinn fyrir þeim takmörkunum á aðgengi sem ráðherrann hefur staðfest í verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarðinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert