Þingmenn Sjálfstæðisflokksins boða nýtt frumvarp á Alþingi þar sem lagt verður til að föst gjöld á eldsneyti verði lækkuð.
Í tilkynningu frá flokknum segir, að tekjur ríkisins af bensín- og olíugjöldum séu orðnar óeðlilega háar. Ástæðan sé hækkandi eldsneytisverð, sem skili síhækkandi tekjum af virðisaukaskatti í ríkissjóð.
Nú kosti bensínlítrinn víðast hvar um 225 krónur og dísilolía 230 krónur. Verðið sé komið langt yfir sársaukamörk, flutningskostnaður kominn upp úr öllu valdi og farinn að hafa áhrif á aðföng, bæði til landsins og út á land.
Það sé því mikið þjóðþrifamál að ná niður bensín- og olíuverði, en skemmst sé að minnast mikilla mótmæla vorið 2008, þegar bensínlítrinn kostaði í kringum 150 krónur.
Frumvarpið verður lagt fram, þegar þing kemur saman á ný eftir nefndadaga í næstu viku.