Leit stendur enn yfir að vélsleðamanni sem varð viðskila við félaga sína við Hrafntinnusker nálægt Landmannalaugum um hádegisbil í dag.
Maðurinn, sem er í símasambandi við björgunarsveitarmenn, hefur búið sér til skjól með snjó og sleðanum og bíður nú björgunar.Unnið er að því að finna staðsetningu mannsins út frá gsm-síma hans. Leitarskilyrði á svæðinu eru slæm, rok og skafrenningur.