Segir þjóðina ekki skuldbundna

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

Þingið skuldbatt ekki þjóðina á höndum og fótum til að borga Icesave í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum utanríkisráðherra og formaður Samfylkingar í stöðuuppfærslu á fésbókarsíðu sinni í dag.

Gagnrýnir Vinstri græna 

Þar gagnrýnir Ingibjörg Sólrún málflutning m.a. Vinstri grænna og segir ólíklegasta fólk hafa tekið undir með Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur, ritstjóra Smugunnar um að íslenska þingið hafið skuldbundið þjóðina til að borga Icesave óháð lagalegri stöðu stöðu málsins og þannig sé þjóðinni ekki fært siðferðislega að taka afstöðu til annars en á hvaða vöxtum og skilmálum beri að endurgreiða. Ingibjörg Sólrún segir að í fyrrgreindum málflutningi felist söguskoðun Vinstri grænna og einfaldlega hyggindi sem komi þeim sjálfum í hag. Hún gagnrýnir einnig að ýmsir úr Samfylkingunni taki undir þetta sjónarmið með Vinstri grænum.

Ingibjörg Sólrún segir að sjálf hafi hún talið frá upphafi að fara ætti samningaleiðina, en þá að því gefnu að ásættanleg niðurstaða fengist. Sú virðist vera raunin.  


„Íslenska þjóðin ekki bundin af neinu
Ingibjörg Sólrún ítrekar að íslenska þjóðin sé enn ekki bundin í málinu og hvetur til þess að fólk fari ekki offari í stuðningi sínum og í umræðum um þjóðaatkvæðagreiðslu megi tilgangurinn ekki helga meðalið.

„Hvað sem líður mörgum og misvísandi yfirlýsingum íslenskra ráðamanna á ýmsum stigum málsins, í fyrrverandi ríkisstjórn og núverandi, þá er íslenska þjóðin ekki bundin af neinu sem við höfum sagt eða samningamenn sett stafina sína undir fyrr en það hefur hlotið staðfestingu löggjafans  Alþingis og í þessu tilviki þjóðarinnar.“ segir Ingibjörg og minnir á að það sé almennt viðurkennt í Evrópu að eftirlitskerfið með bönkunum hafi verið gallað og líkt og regluverk ESB um innlánstryggingar. 

„Léttvægur bjánastimpill“

Ingibjörg Sólrún er óvægin í gagnrýni sinni á ferlið í kringum Iceasave og segir viðsemjendur jafvel kunna að telja okkur bjána.
 „... þótt ekki væri vegna annars en þess að íslenskir ráðamenn hafa jafnan verið fúsir til að semja en hafa verið gerðir afturreka með hverja undirskriftina á fætur annarri, bæði í tíð fyrrverandi og núverandi ríkisstjórnar. Sá bjánastimpill er hins vegar léttvægur samanborið við skuldbindinguna sem í samningum felst en það er eina skuldbindingin sem máli skiptir á þessu stigi og taka þarf afstöðu til. Sú skuldbinding verður aldrei léttvæg jafnvel þó að samningsniðurstaðan núna sé orðin hagstæðari en áður hefur sést.“

Grein Ingibjargar Sólrúnar á Facebook 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert