UVG mótmælir rannsóknarheimildum

Merki UVG
Merki UVG

Stjórn Ungra vinstri grænna (UVG) mótmælir harðlega hugmyndum Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um auknar rannsóknarheimildir lögreglunnar.

„Með því að heimila njósnir um einstaklinga án þess að fyrir liggi rökstuddur grunur um saknæmt athæfi er ríkisvaldið komið út á næfurþunnan ís. Út frá grundvallar mannréttinda - og lýðræðissjónarmiðum verður að hafna öllum slíkum hugmyndum,“ segir í ályktun stjórnar UVG.

„Ung vinstri græn hafa lengi verið gagnrýnin á störf dómsmálaráðuneytisins, ekki hvað síst í stjórnartíð Björns Bjarnasonar. Má þar nefna ömurlega stefnu í málefnum hælisleitenda og annarra útlendinga sem hingað hafa viljað koma, vaxandi áhersla á hermennsku og vopnaburð í starfsemi lögreglunnar á kostnað hefðbundinnar löggæslu og ýmis konar aðför að almennum mannréttindum, ekki hvað síst með njósnum og hertu eftirliti.

Það eru mikil vonbrigði að enn hafi ekki orðið vart við gagngerar stefnubreytingar á sviði dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, þrátt fyrir að nú hafi verið vinstristjórn í landinu í rúm tvö ár. Ung vinstri græn minna Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra, á orð sín þegar forveri hans í embætti hugðist koma slíkum heimildum á og skora jafnframt á hann að endurskoða hug sinn nú. Ung vinstri græn eru sannfærð um að vel sé hægt að efla lögreglulið landsins og starf þess án þess að gripið verði til jafn alvarlegra aðgerða og þess að heimila forvirkar rannsóknir á einstaklingum."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert