Víða hálka á vegum

Víða er hálka á vegum landsins.
Víða er hálka á vegum landsins. Ómar Óskarsson

Hálka er á Hellisheiði, Sandskeiði og í Þrengslum. Á Vesturlandi eru hálkublettir á Fróðárheiði, Vatnaleið og á Bröttubrekku. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum eru víða hálkublettir. Snjóþekja og óveður er á Hálfdáni og á Mikladal annars er víða snjóþekja og skafrenningur á heiðum.

Á Norðvesturlandi eru víða hálkublettir eða hálka og einhver éljagangur. Á Norðausturlandi er víðast greiðfært þó er hálka og skafrenningur á Öxnadalsheiði og mjög slæmt skyggni.

Á Austurlandi er víðast greiðfært þó er ófært um Breiðdalsheiði. Á Suðausturlandi eru hálkublettir allra syðst. Þungatakmarkanir eru víða um land.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert