Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir á Facebook-síðu sinni, að engin siðleg réttlæting sé á þeim ofurlaunum sem æðstu stjórnendur Arion banka og Íslandsbanka hafi fengið á liðnu ári.
„Það er ólíðandi að æðstu stjórnendur banka og fyrirtækja skammti sér milljónir í laun á meðan almenningur berst í bökkum vegna glímunnar við afleiðingar bankahrunsins," segir Jóhanna.
Fram kemur í ársreikningi Arion banka, að Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri bankans, fékk fimm milljónir í laun á mánuði að
meðaltali á seinni hluta síðasta árs. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka fékk
rúmlega 2,6 milljónir á mánuði á árinu. Bankastjóralaun í báðum
bönkunum hafa hækkað á milli ára, að því er fram kemur í ársskýrslum
þeirra.