Leikskóla- og aðstoðarleikskólastjórar í Reykjavík gengu frá Miðbæjarskólanum til Ráðhúss Reykjavíkur í hádeginu í dag og afhentu þar Jóni Gnarr, borgarstjóra, áskorun um að hætta við sameiningar og niðurskurð á leikskólum borgarinnar.
Skólastjórarnir héldu á lofti spjöldum með
einkunnarorðum hvers leikskóla fyrir sig og lögðu spjöldin með táknrænum hætti að fótum borgarstjórans.