Kötturinn ekki sleginn úr tunnunni

Kötturinn sleginn úr tunnunni á Ráðhústorgi.
Kötturinn sleginn úr tunnunni á Ráðhústorgi. mbl.is/Skapti

Norðurorka hf. hefur tekið ákvörðun um að hætta með kattarslaginn á Ráðhústorgi á Akureyri á morgun, öskudag.

Fyrirtækið segir, að þeim krökkum, sem mæta á Ráðhústorgið til þess að slá köttinn úr tunnunni, hafi fækkað mjög á síðustu árum og virðist sem þessi viðburður eigi undir högg að sækja í samkeppninni.

Fram kemur að starfsmenn Rafveitu Akureyrar endurvöktu árið 1970 þann gamla sið að slá köttinn úr tunnunni.  Í upphafi var þetta bundið við að starfsmenn og gestir þeirra komu á starfsstöð Rafveitunnar til þess að slá köttinn úr tunnunni.  Nokkrum árum síðar var viðburðurinn fluttur inn á Ráðhústorg, en einnig var farið með tunnu upp á Sólborg þar sem vistmenn og starfsmenn þar slógu köttinn úr tunnunni.

Tunnan var laminn með hakasköftum þar til hún brotnaði og sá sem braut hana fékk hengda á sig viðurkenningu tunnukóngsins.  Kattarkóngurinn varð sá sem náði með bitlitlu sverði að höggva sundur spottann sem hélt tunnunni en í honum hékk hrafn. 

Þessu var síðar breytt þannig að sá sem hreinsaði tunnustafina af botninum varð tunnukóngur, en sá sem braut botnfjölina af spottanum varð kattakóngur.   Auk þess að tunnukóngur og kattakóngur fengju verðlaunapening hafa jafnan einnig verið veitt verðlaun sem fyrirtæki í miðbænum hafa lagt til. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert