Lögreglan á Akureyri óskar eftir upplýsingum um eiganda styttu sem er í óskilum hjá lögreglunni.
Í frétt á lögregluvefnum kemur fram að styttan fannst í Giljahverfi á Akureyri í lok febrúar. Eru þeir sem geta gefið upplýsingar um styttuna vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 4647700.