Formleg rannsókn hófst fyrir rúmu ári

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar tilkynnti formlega um miðjan desember 2009, að hafin væri rannsókn á því hvort lög um fjármálastarfsemi hafi verið brotin í starfsemi Kaupþings í Bretlandi fyrir fall bankans haustið 2008.

Áður hafði efnahagsbrotadeildin og embætti sérstaks saksóknara á Íslandi tekið upp formlega samvinnu um rannsókn á íslensku bönkunum. 

Efnahagsbrotadeildin sagðist í desember  einkum hafa áhuga á rannsaka hvaða aðferðum hafi verið beitt til að fá sparifjáreigendur og fjárfesta til að leggja fé inn á Kaupthing Edge reikningana.  Myndi rannsóknin beinast að því að leiða í ljós hvort misvísandi eða röngum upplýsingum hafi verið komið á framfæri af hálfu bankans til að laða breska fjárfesta að. 

Einnig sagðist breska lögreglan ætla að rannsaka ákvarðanir, sem virðist hafa leitt til þess að umtalsverð verðmæti hafi verið tekin út úr bankanum vikurnar og dagana fyrir fall bankans í október 2008.

Áætlað var að 30 þúsund einstaklingar, fyrirtæki og samtök hafi lagt fé inn á Kaupthing Edge reikninga í Bretlandi. 

Höfuðstöðvar Singer & Friedlander, dótturfélags Kaupþings í Bretlandi.
Höfuðstöðvar Singer & Friedlander, dótturfélags Kaupþings í Bretlandi.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert